Draumaborn on Facebook
| Um félagið |
|
|
Draumabörn er síða fyrir einstaklinga og pör sem eiga börn, eiga von á barni eða eru að reyna að eignast barn. Margir eiga erfitt með að geta barn og erum við með allskonar fróðleik um erfiðleika sem því fylgir. Fyrst var þetta bloggsíða en það bættist svo hratt í hópinn að fljótt var opnuð spjallsíða. Eftir nokkra mánuði var svo ákveðið nafn á þennan hóp okkar og varð nafnið Draumabörn fyrir valinu og keyptum við þá lénið draumaborn.net sem við uppfærðum seinna í draumaborn.is. Á spjallinu okkar er hresst og skemmtilegt fólk og bjóðum við þér að vera með ef þetta höfðar til þin. Gestum spjallsins fjölgar ört og fleiri og fleiri fá jákvæð óléttupróf sem koma eftir langa mæðu. Þessi síða væri þó ekki til nema fyrir alla okkar frábæru fastagesti sem eru duglegir að spjalla, gefa hvor öðrum ráð og styrkja hvor aðra. Í maí 2008 var stofnað félag í kringum samfélagið okkar og tókum við upp valfrjáls félagsgjöld til að hjálpa við að halda uppi rekstrinum á síðunni og hafa fastagestir tekið vel í það. Fyrir hönd Draumabarna, Árný, Berglind, Emil, Heiðar, Margrét og Valli. |


