Félagið
Reglur í lokuðum hópum Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Um þig

Í öllum lokuðum hópum er kynningarþráður. Í þeim skal gefa upp rétt fullt nafn við inngöngu. Einnig er mælst til þess að notendur breyti notendanafni sýnu í sitt rétta nafn og/eða setji það í undirskrift, en það er þó ekki skylda.
Undantekning frá þessu er í PCOS, Englarnir okkar og Memma. Einnig er undantekning frá þessu í bumbuhópum, þar sem leyfilegt er að koma fram undir dulnefni fram til 15. viku meðgöngu, en þá skal setja fullt nafn í kynningarþráðinn.
Í hópum þar sem innganga byggist á aldri, skal einnig setja fæðingardag og ár.
Notendur hafa viku frá því að fá aðgang að hóp þar til að þeir verða að hafa kynnt sig í kynningarþræði. Þeir sem ekki hafa kynnt sig eftir að tíminn er liðinn eiga á hættu að vera fjarlægðir úr hópnum.

Trúnaður

Við minnum á það að það sem er sagt innan hópsins á ekki að ræða utan hans. Innan hópsins gildir trúnaður líkt og á spjallinu sjálfu.

Reglur um virkni

Virkni notenda í svona hópum skiptir máli til þess að hafa spjallið sem persónulegast og þess vegna er fylgst með virkni notenda. Tilgangur þessara reglna er að vernda einkalíf notenda og að tryggja að eingöngu notendur sem taka þátt í spjallinu hafi aðgang.
Til að teljast virkur í hóp þarf að setja inn 15 innlegg á mánaðartímabili. Innleggin þurfa að vera innihaldsrík og taka þátt í umræðunni. Innleggin þurfa einnig að vera dreifð yfir mánuðinn, en sem dæmi má nefna að það að setja inn 15 innlegg á einum degi, einu sinni í mánuði telst ekki til þátttöku.
Þessar reglur eru til viðmiðunar, lokaákvörðun um hvað telst tik virkni er í höndum stjórnenda.  Notendum sem ekki teljast virkir er vísað úr hópnum. Það er þó hægt að sækja um aftur ef að viðkomandi sýnir vilja til að vera virkur og taka þátt í spjallinu en hver notandi fær þó aðeins 3 tækifæri og þá hafa meðstjórnendur hópsins heimild til að synja um endurinngöngu í hópinn.

Að lokum hvetjum við alla til þess að kynna sér notendaskilmála spjallsins og fara eftir þeim. Við minnum notendur einnig á að hafa samband við stjórnendur á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða nota "Tilkynna stjórnendum" hnappinn sem að er við hvert innlegg ef að þeir verða vitni af reglubrotum.

Eftirlit

Bæði stjórn Draumabarna og meðstjórnendur fylgjast með að reglum sé fylgt allstaðar á spjallinu. Öll ritstjórn, refsingar og viðvaranir koma frá stjórnendum, en meðstjórnendur hafa ekki heimildir til að sjá um slíkt. Eftirlit meðstjórnenda kemur ekki í stað eftirlits stjórnenda.

 
Reglur í bumbu- og mömmuhópum

Þessar reglur hafa verið sameinaðar reglum í lokuðum hópum.

 

Lög félagsins Draumabörn

1.gr.

Félagið heitir Draumabörn

2. gr.

Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík

3. gr

Félagið var stofnað í þeim tilgangi að fá áhugamenn um foreldrahlutverkið til að sameinast í áhugamáli sínu, hittast og miðla fróðleik sínum. Félagið hyggst ná markmiðum sínum með því að halda úti vefsíðu og standa fyrir samkomum og uppákomum af ýmsu tagi. Draumabörn ætlar sér ekki að græða fé, og mun öllu umframfé vera eytt til að efla starfsemi félagsins.

4. gr.

Stjórnarmenn eru:
Árný Eva Sigurvinsdóttir
Berglind Guðnadóttir
Emil Friðriksson
Lilja Rut Benediksdóttir
Margrét Inga Gísladóttir

5.gr.

Félagsaðild
Félagið tekur ekki inn nýja félaga nema með samþykki stjórnar. Allir eru þó velkomnir að gerast styrktaraðilar og skrá sig á spjallvef félagsins, nema stjórn hafi ákveðið annað.

6. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð að minnsta kosti 4 félagsmönnum, þ.e. formanni, varaformanni og 2 eða fleiri meðstjórnendum. Stjórnarmenn eru æviráðnir, en geta þeir sagt sig úr embætti. Það þarf að gera skriflega til formanns félagsins. Ef til þess kemur að stjórnarmaður segir sig úr embætti skal stjórnin kjósa nýjan stjórnarmann í hans stað, ef þurfa þykir. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

7. gr.

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

8. gr.

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í hag félagsmanna með ýmsum uppákomum eða safnað í framkvæmdar- og rekstrarsjóð félagsins.

9. gr.

Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með 3/4 hluta atkvæða og renna eignir þess til Barnaspítala Hringsins.

10. gr.

Félagsmenn skulu heita trúnaði við öllu sem þeir lesa eða heyra um aðra félagsmenn á samkomum eða á vefsíðu félagsins. Brot á þessari reglu varðar brottvísun úr félaginu án fyrirvara.

11. gr.

Stjórn má breyta lögum félagsins með 3/4 hluta atkvæða á stjórnarfundum.

 

Lög þessi voru samþykkt á stjórnarfundi og öðlast gildi 18. ágúst 2010.

Undir þetta skrifa Emil Friðriksson, Berglind Guðnadóttir, Árný Eva Sigurvinsdóttir og Lilja Rut Benediktsdóttir. Aðrir stjórnarmenn voru fjarverandi.

 
Notendaskilmálar Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Emil   

Notendum ber að samþykkja þessa skilmála vilji þeir nota spjallið. Spurningum skal beint á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

  1. Allt baktal er bannað á spjallinu.
  2. Notendum ber að virða aðra og skoðanir þeirra.
  3. Allar persónuárásir og meinyrði eru bönnuð.
  4. Á spjallinu skal ríkja trúnaður, bæði innan lokaðra hópa og á spjallinu öllu. Ekki er leyfilegt að ræða það sem fram á spjallinu eða hittingum við utanaðkomandi, ekki einu sinni við maka eða vini.
  5. Bannað er að setja inn þræði eða innlegg sem eru viljandi gerð til að æsa upp eða móðga aðra notendur.
  6. Bannað er að setja inn persónuupplýsingar um aðra. Ekki má setja inn persónuupplýsingar um aðra, sem gera má ráð fyrir að aðilinn sem rætt er um, myndi ekki vilja að sendar væru inn. Þetta á við upplýsingar eins og heimilisföng og símanúmer og annað slíkt.
  7. Samskipti milli notenda og stjórnenda um viðvaranir, bönn eða aðrar refsingar eru einkamál og bannað er að setja slíkt inn á spjallið. Ef notendur vilja spyrjast fyrir um slíkt er hægt að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
  8. Bann án viðvörunar getur hlotist af eftirfarandi: Að pósta hótunum eða meinyrðum. Sama á við um alvarleg trúnaðarbrot.
  9. Það að pósta mörgum þráðum um sama efni er bannað og öllum nema einum verður eytt.
  10. Að byrja marga þræði á skömmum tíma, hvern um sig um minni háttar hluti (spamming) verður til þess að þræðirnir verða sameinaðir í einn. Við ítrekuð brot verða viðvaranir gefnar.
  11. Það að látast vera annar notandi eða stjórnandi, með hvaða hætti sem er, t.d. með því að nota svipað notandanafn eða undirskrift, verður til þess að bæði notendur og IP tölur notanda verða bönnuð.
  12. Taka skal tillit til nýrra notenda, sem hugsanlega þekkja ekki venjur og sögu spjallsins.
  13. Ekki má setja inn auglýsingar annars staðar en í auglýsingadálkinn. Í undirskrift má vera einnar línu auglýsing með smáu letri. Fyrirtæki mega þó ekki auglýsa á þennan hátt.
  14. Keðjubréf eða álíka má ekki setja inn. Auglýsingar á svokölluðum "píramíta" eða "Ponzi" kerfum er bönnuð nema aðeins sé verið að selja vöruna en ekki reyna að ráða sölumenn.
  15. Jákvæð gagnrýni er af hinu góða. Ef þú hefur hinsvegar ekkert jákvætt að segja, er oftast betra að segja ekki neitt.
  16. Félagið Draumabörn getur ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda og tekur ekki ábyrgð á neins konar tjóni sem að notandi eða aðrir kunnu að hafa af völdum spjallsins. Allir notendur taka ábyrgð á eigin orðum og gjörðum.
  17. Við áskiljum okkur rétt á að taka út eða læsa umræðum sem að við teljum ekki við hæfi eða brjóta á einhvern hátt reglur spjallsins. Einnig áskiljum við okkur rétt til að banna hvern sem er, með eða án ástæðu.
  18. Bönn ber að virða. Ef notandi verður uppvís að því að setja inn innlegg fyrir bannaðan notanda eða á einhvern hátt leyfa hinum bannaða að koma skilaboðum á framfæri í gegnum spjallið, verður sá hinn sami bannaður jafn lengi og sá sem hann aðstoðar.
  19. Ekki má undir neinum kringumstæðum skrá sig inn á notandanafn annara. Einnig ber notendum að halda sýnum lykilorðum fyrir sig. Lokað verður á hvern þann sem skráir sig inn á aðra notendur með eða án leyfis eða leyfir öðrum að skrá sig inn á sitt notandanafn.
  20. Ef notandi sér innlegg sem brýtur gegn þessum reglum, ber honum skylda til að nota "Tilkynna innlegg" linkinn í því innleggi til að láta stjórnendur vita.
  21. Allt sem brýtur gegn hegningalögum, sérstaklega "XXV. kafli. Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs." er bannað og getur leitt til banns án viðvörunar. Undir þetta falla fordómar gegn þjóðfélagshópum, o.fl.

Sérstakar reglur gilda um þáttöku í lokuðum hópum.

Eftirlit

Bæði stjórn Draumabarna og meðstjórnendur fylgjast með að reglum sé fylgt allstaðar á spjallinu. Öll ritstjórn, refsingar og viðvaranir koma frá stjórnendum, en meðstjórnendur hafa ekki heimildir til að sjá um slíkt. Eftirlit meðstjórnenda kemur ekki í stað eftirlits stjórnenda.

Athugasemd um trúnaðarskyldu:

Þó að trúnaður sé meginregla á spjallvef Draumabarna, gilda landslög Íslands ávallt ofar notendaskilmálum þessum. Við viljum sérstaklega benda á tilkynningaskyldu í barnaverndarmálum, en í 16. gr laga nr. 80/2002, stendur:

16. gr. Tilkynningarskylda almennings.
Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd.
Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndarnefnd viðvart um hvert það tilvik sem telja má að hún eigi að láta sig varða.


Einnig er það sjónarmið okkar að hótanir, sem falla undir 233. gr. laga nr. 19 frá 1940 (Almenn hegningarlög), falli ekki undir trúnaðarregluna og eigi undantekningalaust að vera tilkynntar til lögreglu og stjórnenda. Þar stendur:

233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.


Sjálfsvígshótanir:

Ef notandi sér innlegg þar sem einhver hótar að skaða sjálfa sig, ber öllum notendum að tilkynna stjórnendum það tafarlaust. Að auki er hægt að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717, en við minnum á mikilvægi þess að láta stjórnendur ávallt vita af slíkum tilfellum þar sem við höfum upplýsingar sem geta gagnast yfirvöldum í slíkum málum.
Í þessum tilvikum á trúnaðarskylda að sjálfsögðu ekki við í samskiptum við yfirvöld eða Hjálparsíma Rauða krossins. Trúnaðar skal samt gætt að öðru leyti varðandi mál sem þessi, enda eru þetta mál af viðkvæmasta tagi.
Til að ná í stjórnanda Draumabarna í tilvikum sem þessum er hægt að hringja eða senda SMS til Emils í síma 823-4578 hvenær sem er sólarhringsins. Ekki hika eða bíða og sjá, því að líf geta verið í húfi.

Viðmiðanir um lengdir banna:

Bönnum og viðvörunum er úthlutað af stjórnendum vegna reglubrota notenda. Almennt eru notendur settir í 7 daga bann við 3. viðvörun, 30 daga bann við 6. viðvörun og eilífðarbann við 7. viðvörun. Þetta eru þó aðeins viðmið og stjórnendur geta sett notendur í umsvifalaust bann ef reglubrot eru alvarleg.

Viðmiðunarreglur um þáttöku í spjallinu:

Spjall Draumabarna er sérstakt að því leyti að hérna tala notendur oft um mjög persónuleg og viðkvæm mál. Vegna þessa höfum við sett reglur um lágmarks þátttöku í spjallinu.

  • Ef notandi hefur ekki tekið þátt í umræðum 1 mánuð eftir að hann skráir sig á spjallið þá er notandanum eytt án viðvörunar.
  • Ef að notandi er með minna en 10 pósta og hefur verið skráður á spjallið í meira en mánuð eða hefur ekki skráð sig inn á spjallið í meira en 90 daga þá er notandanum eytt án viðvörunar. En auðvitað er hægt að láta okkur vita ef það er verið að fara í langt frí.
  • Ef að notandi með minna en 300 pósta hefur ekki skráð sig inn í 6 mánuði og ekki látið vita af sér þá er notandanum eytt án viðvörunar.
  • Ef að notandi með meira en 300 pósta hefur ekki skráð sig inn í 12 mánuði og ekki látið vita af sér þá er notandanum eytt án viðvörunar.

Til að fá að vera með þarf að taka þátt í umræðum og vera virkur notandi, út á það gengur þetta spjall.

 

Við áskiljum okkur rétt á því að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.

 
Skráning í félagið Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Emil   
Miðvikudagur, 30 Júlí 2008 11:43

Til að skrá sig í félagið þarf að leggja 1500 kr. inn á reikning 0111-26-048050, kt. 480508-1140. Fyrir þá sem búa erlendis þá er IBAN númerið IS40 0111 2604 8050 4805 0811 40 og SWIFT (BIC)    NBIIISRE.

Endilega látið notendanafnið ykkar af spjallinu í skýringu og sendið kvittun á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Ekki er skylda að vera meðlimur til að taka þátt í félagsstarfi en meðlimagjöld fara í að borga hýsingarkostnað fyrir síðuna og spjallið og hafa uppákomur fyrir meðlimi. Einnig fá meðlimir afslátt af matföngum á samkomum og hjá styrktaraðilum.

LAST_UPDATED2
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
© 2008 Draumabörn. Öll réttindi áskilin. Powered by Joomla! and template originally designed by SiteGround web hosting and modified by Emil Friðriksson.