Lög félagsins Draumabörn
1.gr.Félagið heitir Draumabörn 2. gr.Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík 3. grFélagið var stofnað í þeim tilgangi að fá áhugamenn um foreldrahlutverkið til að sameinast í áhugamáli sínu, hittast og miðla fróðleik sínum. Félagið hyggst ná markmiðum sínum með því að halda úti vefsíðu og standa fyrir samkomum og uppákomum af ýmsu tagi. Draumabörn ætlar sér ekki að græða fé, og mun öllu umframfé vera eytt til að efla starfsemi félagsins. 4. gr.Stjórnarmenn eru: 5.gr. Félagsaðild 6. gr.Stjórn félagsins skal skipuð að minnsta kosti 4 félagsmönnum, þ.e. formanni, varaformanni og 2 eða fleiri meðstjórnendum. Stjórnarmenn eru æviráðnir, en geta þeir sagt sig úr embætti. Það þarf að gera skriflega til formanns félagsins. Ef til þess kemur að stjórnarmaður segir sig úr embætti skal stjórnin kjósa nýjan stjórnarmann í hans stað, ef þurfa þykir. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. 7. gr.Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. 8. gr.Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í hag félagsmanna með ýmsum uppákomum eða safnað í framkvæmdar- og rekstrarsjóð félagsins. 9. gr.Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með 3/4 hluta atkvæða og renna eignir þess til Barnaspítala Hringsins. 10. gr.Félagsmenn skulu heita trúnaði við öllu sem þeir lesa eða heyra um aðra félagsmenn á samkomum eða á vefsíðu félagsins. Brot á þessari reglu varðar brottvísun úr félaginu án fyrirvara. 11. gr.Stjórn má breyta lögum félagsins með 3/4 hluta atkvæða á stjórnarfundum.
Lög þessi voru samþykkt á stjórnarfundi og öðlast gildi 18. ágúst 2010. Undir þetta skrifa Emil Friðriksson, Berglind Guðnadóttir, Árný Eva Sigurvinsdóttir og Lilja Rut Benediktsdóttir. Aðrir stjórnarmenn voru fjarverandi. |

